Hér birtist smásaga
sem ég skrifaði í lok árs 1999. Þetta er eina smásagan eftir mig sem hefur hlotið hefur viðurkenningu(3.
sætið í smásagnakeppni Verzlunarskólablaðsins og einkunnina 7,5 í Íslensku) og verið birt. Hún
skrifuð í anda smásagna Andra Snæs Magnasonar þrátt fyrir að mikið
vanti á til að geta nálgast meistaraverk hans að einhverju leyti.
Líf mitt hefur alltaf gengið sinn vanagang, ekkert sérstakt
né merkilegt gerst hjá mér nema kannski þegar ég náði því
merkilega afreki að finna mér almennilega vinnu. Ég, sveitalubbinn, fékk
vinnu sem yfirdanshöfundur hjá stóru fyrirtæki sem sérhæfði sig í
landflutningum. Ég gerði það sama alla daga, gaf mig á vald vöruflutningabílanna
og dansaði polka við þá daginn út og inn. Er ég varð þreyttur á
því hóf ég að nota bílana til að hagnast á þeim. Seldi þá út
til að dansa, þá sérstaklega tangó, á ýmsum klúbbum og skemmtunum
hundavinafélagsins á kvöldin. Það gekk vel og engin tók eftir
misnotkun minni fyrst í stað. Vöruflutningabílarnir áttuðu sig ekki
á því að ég væri að svindla á þeim.
Ætli efasemdir yfirhunda minni hafi ekki byrjað
fyrst fyrir alvöru er einn bílanna missti taktinn er hann var að dansa
sömbu til Þorlákshafnar með þeim afleiðingum að bæði bíllinn og
danshöfundur hans fengu að fjúka, og þá meina ég fjúka. Við rannsókn
málsins kom margt upp úr dúrnum. Þar á meðal kom í ljós að bíllinn
hafði allt í einu ruglast og byrjað að dansa tangó en þann dans var
samkvæmt lögum ekki leyfilegt að kenna bílunum, hætta var talin á að
það hefði einhverjar miður góðar kynferðislegar afleiðingar í för
með sér. Afkvæmi tveggja vöruflutningabíla er venjulega hent á
haugana og það vill oft setja þá aðeins út af laginu. Því var talað
við mig, yfirdanshöfundinn, um þetta mál.
Þennan grámyglulega morgun var ég nýkominn til
vinnu er tíkin kom með skilaboðin til mín.
„Urrrr, Voffff, vof“ sagði hún mjög alvarlega.
„Grrr, vofff“, svaraði ég og bætti við„Voff,
voff, vofff, urrr“
Ég áttaði mig á alvöru málsins við háttalag
hennar. Hún var vön senda eitt fallegt bofs í áttina til mín á
morgnana en nú var það horfið og í staðinn kom þessi hranalegi
talsmáti. Ætli það sé planið hjá þeim að taka mig á teppið og
hundskamma mig, hugsaði ég með mér.
Ég ákvað að reyna að hraða för minni sem mest
ég mátti til stofunnar. Þegar þar var komið var hún Þruma,
einkaritari Loða, ekki á staðnum. Ég hikaði í smá tíma áður en sú
dýrslega ákvörðun var tekin að klappa á hurðina. Þrúgandi þögn
fyllti loftið í nokkrar sekúndur eftir klappið en síðan drundi innan
úr stofunni:
„MEEMEE“,
en á eftir fylgdi „ meee, mee, me, meee“
Mér brá við er ég heyrði þetta háa jarm og
setti það mig aðeins út af laginu. Ég hafði aldrei búist við að
þetta hefði borist til lögreglunnar.
Ég skellti trýninu á hurðina og hún opnaðist hægt
og rólega. Þegar ég kíkti inn sá ég af hverju Þruma hafði ekki
verið á sínum stað fyrri utan. Búið var að binda hana við jötu í
horninu. Loði var á sínum stað á standinum sínum en núna höfðu bæst
við tvær löggur á hina tvo gestastandana. Þá vissi ég að þær
grunaði eitthvað.
„Mee mmee me. Meee meee me meme“ var það fyrsta
sem kindurnar sögðu. Ég var í djúpri mykju. Ég vissi að ég mátti
ekki hreyfa mig of mikið vegna þess að þá myndi ég sökkva enn dýpra.
Þær þaulspurðu mig um hvaða hlutverki ég gegndi
hjá fyrirtækinu og spurðu hvort ég hefði eitthvað komið nálægt því
að kenna bílunum tangó. Þær hótuðu að gelda mig eins og Þrumu. Ég
sagðist ekki kannast neitt við þessa svokölluðu tangókennslu og það
væri fullt af kennslumyndböndum um það hvernig ætti að læra tangó
á borð við metsölutiltla eins og „How to learn to dance Tango in 5
easy steps with Arnold Schwarzenegger.“ Lögreglukindurnar skellijörmuðu
en fljótlega var komið annað hljóð í strokkinn. Þær vildu vita
hverjir stæðu á bak við þessa Tangó-uppreisn, annars yrði ég og fjölskylda
mín send í þrælkunarvinnu á Bretlandseyjum. Þá varð ég hvumsa við
en viðurkenndi samt ekki sekt mína. Loks gáfust þær upp en jörmuðu
því að mér að þær myndu jarma við mig seinna. Ég hafði forðað
mér frá að sökkva í þetta sinn.
Mér fannst eins og þungri ól hafði verið lyft af
hálsi mér er ég slapp út. Að loknum vinnudeginum trítlaði ég heim.
Daginn eftir var eins og það væri mun léttara yfir
öllu. Tíkin bofsaði að mér einu daðurslegu bofsi eins og venjulega
og við það létti mér. En Adam var ekki lengi í Paradís því er ég
kom í æfingasalinn minn biðu eftir mér nokkrar lögreglukindur. Þær
sem ég hitti í gær voru þar fremstar í flokki. Það var greinilegt að
þær höfðu talað við vörubílana og fengið upp úr þeim það sem
þær vildu. Þegar þær bjuggust til að handtaka mig hrópaði ég að
þeim:
„Það var ekki ég sem átti upptökin að tangó-byltingunni
heldur var það Loði“
Við þessi orð mín stóðu kindurnar alveg
grafkyrrar í nokkrar sekúndur. Eyru þeirra stækkuðu og þær virtust
ekki ætla að trúa þessu. Ég áttaði mig á mistökum mínum um leið
og seinasta orðið flaug út úr mér. Ég hafði komið upp um
dulargervi mitt og ég vissi að hundakúnstir mínar mundu engin áhrif
hafa lengur. Ég stóð kyrr í örfá andartök áður en ég vaknaði af
þessum dásvefni. Ég gerði tilraun til að forða mér en þá var eins
og kindurnar áttuðu sig á því að það mátti auðvitað alls ekki láta
mig sleppa. Þær réðust á mig af grimmd sem aðeins kindur og lömb
eiga til. Það var það seinasta sem ég man eftir mér.
Kannski er tími til kominn að segja ykkur forsögu nútímans
áður en lengra er haldið. Er kindin Dollý var klónuð hófst nýtt
skeið í sögu heimsins. Kindurnar áttuðu sig á því hversu mikilvægar
þær væru fyrir allt líf á þessari jörð. Þær náðu með hjálp
fyrrum óvina sinna hundanna að fella mennina á sínu eigin bragði, græðginni.
Þær komu af stað miklu verðfalli í kauphöllum um allan heim með því
að dulbúa sig sem fjárfesta og komu við það bönkum heimsins á
hausinn. Er það var búið lá heimurinn að klaufum þeim og mennirnir
frömdu sjálfsmorð í hrönnum. Er mannfjöldi jarðar var kominn niður
í eina milljón tóku seinustu leiðtogarnir með viti sig saman og
sameinuðu allan fólksfjöldann á eyjaklasa út í miðju ballarhafi er
hét Færeyjar og var þar seinasta vígi mannsins. Þar voru höfuðstöðvar
andspyrnuhreyfingarinnar.
Er ég opnaði augun sá ég ekkert nema rimla. Það
tók mig nokkrar sekúndur að átta mig á því hvar ég var. Ég hafði
verið fluttur í hundabyrgið og búið var að svipta mig dulargervinu.
Ég vissi hvað beið mín, ég var að fara í hundana. Ég tilheyrði
óæðri dýrategund sem átti enga framtíð fyrir sér, fyrrverandi
drottnarar jarðarinnar höfðu misst allt niðrum sig og kindurnar höfðu
gripið buxurnar og troðið sér í þær. Úlfar í sauðagæru eiga sér
víst enga lífsvon eftir að gæran er rifin af þeim, þeir eru sendir
beint í sláturhúsið þar sem þeim er slátrað, ásamt öllum hinum
eldismönnunum sem eru notaðir í kindafóður. Dauðinn beið mín eins
og barn bíður jólagjafanna á aðfangadag, með mikilli tilhlökkun. Ég
flýg með fæturna á undan út í eilífðina og ætli það séu ekki
bara makleg málagjöld fyrir óæðri veru eins og mig.
Ég
er maður.
|